Spurningaskrá númer 134 um Norðurlöndin og norrænt samstarf er nú opin til svörunar í Þjóðháttasafni.
Norræna félagið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands leitar til heimildamanna til að safna upplýsingum um viðhorf almennings til Norðurlandanna og norræns samstarfs. Við leitum til þeirra sem hafa reynslu af norrænu samstarfi í einni eða annarri mynd, hvort heldur sem er gegnum nám, í starfi, félagsstarfi eða vegna fjölskyldusögu.
Svörin mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg, við viljum fá sem mestar upplýsingar um efnið. Þú mátt endilega taka ýmis konar dæmi af þinni reynslu. Það er mjög gagnlegt fyrir rannsóknina að fá lýsingar og frásagnir frá þeim sem svara. Þú getur einfaldlega sleppt þeim spurningum sem höfða ekki til þín og einbeitt þér að hinum.