Norræna félagið á RÁS 1

Uppástand er þáttur á RÁS 1 þar sem fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni. Þessa dagana er Uppástand sent út í samvinnu við Norræna félagið, sem hélt upp á 100 ára afmæli sitt nú í haust. Um er að ræða tíu örþætti sem verða á dagskrá kl. 12:03 alla virka daga 17. – 28. október.

Þættirnir verða aðgengilegir í spilara RÚV til október 2023 og hægt að smella á einstakan þátt hér fyrir neðan til að hlusta.

Dagskrá:

17. október100 ára afmæli Norræna félagsins – Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins.

18. októberSamstarf Þjóðháttadeildar Þjóðminjasafnsins og Norræna félagsins – Helga Vollertsen, sérfræðingur þjóðhátta við Þjóðminjasafn Íslands.

19. októberKonungar Íslands – Kristján Sveinsson, sagnfræðingur.

20. októberUpplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar – Ástrós Signýjardóttir, verkefnastjórri Info Norden.

21. októberSamvinna norrænu þjóðþinganna – Helgi Þorsteinsson, stjórnarmaður í Norræna félaginu.

24. októberUmhverfissamstarf – Tryggvi Felixsson, auðlindahagfræðingur og fyrrum starfsmaður Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs.

25. októberNorræn samvinna á sviði menningarmála – Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, þjóðfræðingur og formaður Höfuðborgardeildar Norræna félagsins á Íslandi.

26. októberUngt fólk og Norðurlöndin – Hannes Björn Hafsteinsson, verkefnastjóri Nordjobb hjá Norræna félaginu.

27. októberSkiptinám á Norðurlöndum – Pála Hallgrímsdóttir, verkefnastjóri hjá Norræna félaginu.

28. októberTækifæri í norrænni samvinnu – Ásdís Eva Hannesdóttir, framkvæmdarstjóri Norræna félagsins