Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins og Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir varaformaður Norræna félagsins rita:
Norrænt samstarf er alveg magnað fyrirbæri. Við tökum því flest sem sjálfsögðu og gefnu og tölum nánast aldrei um það. Það bara er þarna og það er gott. Soldið eins og amma eða afi. Og sannarlega er það gott og gengur að mörgu leyti vel, svo engann þarf að undra að stuðningur almennings sé nær órofa, í öllum þeim átta löndum sem að því koma. Ekkert alþjóðlegt samstarf nýtur í raun meiri stuðning i veröldinni og víða um heim horfa þjóðir öfundaraugum til Norðurlandanna að þessu leyti.
Norræna fjölskyldan
Það er heldur ekkert smá afrek að hafa á nokkrum mannsöldrum, náð að færa þessar átta þjóðir saman í eina fjölskyldu, þjóðir sem áður bárust á banaspjótum, rændu og ruppluðu, kúguðu og misnotuðu og háðu stríð hver við aðra, oftar en nokkrar aðrar grannþjóðir í veröldinni. Það eru vissulega meira en tvö hundruð ár síðan vopnum var síðast beitt í erjum þessarar þjóða, en alla síðustu öld hafa þær staðið í margskonar átökum hver við aðra, ekki síst tengdum sjálfstæðiskröfum og sjálfsstjórn – og standa þau átök í raun enn innan norrænu fjölskyldunnar. Vegna norræns samstarfs og hugsjónarinnar um vinarþel og samstöðu þessara átta þjóða, hefur okkur auðnast að vinna úr okkar málum, betur en flestar aðrar þjóðir í svipaðri stöðu. Hörmungarnar sem við fylgjumst nú með í Palestínu og Úkraínu eru m.a. til vitnis um það.
Samfélög í forystu
Ávinningurinn af norrænu samstarfi verður seint ofmetinn. Eftir að samstarf Norðurlandanna hófst fyrir alvöru hafa þau verið nánast samstíga í allri samfélagsþróun. Hvort sem er horft er til efnahaglegs vaxtar, uppbyggingu innviða, mannréttinda, félagsleg réttlætis, öryggis borgaranna eða trausts eru norrænu samfélögin í forystu á heimsvísu. Árangurinn er í raun lyginni líkastur.
Meira norrænt samstarf
Á degi Norðurlandanna er okkur öllum hollt að hugsa hlýtt til norræns samstarfs. Auðvitað ættum við að gera það á hverjum degi og leggja okkar af mörkum til að hlúa að því og efla. Norrænt samstarf og allur þess ávinningur er enda hvorki gefið né sjálfsagt og nú er það í okkar höndum að ákveða framhaldið. Viljum við byggja á ótrúlegum árangri liðinna áratuga og stíga enn frekari skref með okkar norrænu fjölskyldu eða sjá menn aðrar heillavænlegri leiðir? Í mínum huga og Norræna félagsins er svarið skýrt. Við þurfum mun meira norrænt samstarf og róttæk skref í samþættingu norrænu landanna. Eigi markmið norrænu ríkjanna um að Norðurlöndin verða samþættasta svæði veraldar árið 2030, að verða að veruleika, er sannarlega ekki eftir neinu að bíða.