Norræna félagið sér um framkvæmd Fundar fólksins

Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla, og Hrannar B. Arnarsson, formaður Norræna félagsins, skrifuðu undir samning þess efnis að Norræna félagið verði framkvæmdaaðili lýðræðishátíðarinnar Fundur fólksins næstu þrjú ár. Samningurinn er gerður í framhaldi af góðum styrk Reykjavíkurborgar og Félagsmálaráðuneytisins við fundinn ásamt Norræna húsinu.

Fundur fólksins verður í Norræna húsinu 16. – 17. október. Allir geta tekið þátt og hægt er að skrá viðburði á heimasíðu hátíðarinnar fundurfolksins.is

Tilgangur Fundar fólksins er að skapa vandaðan vettvang, þar sem boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálamanna og frjálsra félagasamtaka. Markmið hans er að skapa meira traust og skilning á milli ólíkra aðila samfélagsis.

Lýðræðishátíðin var fyrst haldin í Norræna húsinu í júní árið 2015 og á sér fyrirmynd á hinum Norðurlöndunum.

Frá setningu Fundar fólksins í Norræna húsinu september 2016

Á lýðræðishátíðina Fund fólksins mætir fólk sem vill taka þátt í suðupotti þar sem raddir fólksins í landinu heyrast. Félagasamtök um allt land taka þátt í dagskránni sem samanstendur af óformlegum og formlegum fundum, uppákomum, tónlist, gleði og glaumi. Markmið hátíðarinnar er að efla rödd almennings, koma skoðunum á framfæri og ræða málefni samfélagsins. Fundur fólksins er því kjörinn vettvangur fyrir hópa og félagasamtök að standa fyrir málstofum, pallborðsumræðum, kynningum á ákveðnum málefnum, sýna sig og sjá aðra á þeim forsendum að allir skipta máli.