Minningarathöfn / minnemarkering 22. juli

Norsk and English below

Verið öll hjartanlega velkomin á minningarathöfn um þau 77 sem létust í hryðjuverkaárásunum í Osló og Útey 22. júli 2011. Minningarathöfnin fer fram í minningarlundinum í Vatnsmýri miðvikudaginn 22. júlí kl 20:00. Hittumst við Norræna húsið og göngum saman (2 mínútur) að lundinum.

Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs á Íslandi og Sigrún Skaftadóttir, fyrrverandi alþjóðaritari Ungra jafnaðarmanna flytja erindi, auk þess sem Svavar Knútur verður með tónlistaratriði. Gestum er velkomið að koma með rósir eða kerti.

Aðgengismál: bílastæði eru við Norræna húsið og svo er stuttur spölur að minningarlundinum, yfir gras sem gæti verið illfært hjólastólum í rigningu.

NORSK

Hjertelig velkommen til minnemarkering om de 77 som ble drept i terrorangrepene i Oslo og Utøya 22. juli 2011. Vi vil møtes ved det Nordiske hus og gå sammen (2 minutter) til minnestedet i Vatnsmýri.

Ambassadør Aud Lise Norheim og Sigrún Skaftadóttir, tidligere internasjonal sekretær hos UJ, holder tale og Svavar Knútur tar seg av musikken. Deltakere må gjerne ta med roser eller stearinlys.

Tilgjengelighet: parkeringsplasser finnes ved det Nordiske hus. Minnestedet er plassert et lite stykke unna, over en gressflate som kan være ufremkommelig for rullestoler i mye regn.

ENGLISH

Welcome to our memorial to honour the 77 who died in the terror attacks in Oslo and Utøya on July 22nd 2011. We will meet at the Nordic house and walk together (2 minutes) to the memorial in Vatnsmýri.

Aud Lise Norheim, Norway’s ambassador to Iceland, and Sigrún Skaftadóttir, UJ’s former international secretary, will hold speeches and musician Svavar Knútur will perform. Participants are welcome to bring roses or candles.

Accessibility: There’s a parking lot by the Nordic house. The memorial is close by, across some grass which could be hard to pass through by wheelchair on a rainy day.

Hægt er að ganga í Norræna félagið á meðfylgjandi slóð:  http://bit.ly/2MGjx9D

Einnig er hægt að skrá sig á facebooksíðu Norræna félagsins.