Nú eru til umsóknar ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum samstarfsverkefnum.
Markmið Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði menningar, menntunar og vísinda. Sjóðurinn var stofnaður í kjölfar gjafar Svía til Íslendinga á 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins 1994.
Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem er að finna á https://svenskislandskafonden.se/ansok-om-resebidrag
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2023, kl. 23.59 að sænskum tíma (kl. 22.59 að íslenskum tíma).
Tengiliður sjóðsins er Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir - rht@simnet.is