Dagur Norðurlanda 2023

Norræna félagið, Norræna húsið og Norræna ráðherranefndin bjóða þér að taka þátt í Degi Norðurlanda í Norræna húsinu 23. mars, kl. 16:00 – 18:15. Dagurinn markar undirskrift Helsinki-sáttmálans sem leggur grunn að samstarfi norrænna þjóða. Dagskráin í ár hverfist um frið og norræna samstöðu á stríðstímum og samanstendur af pallborðsumræðum, ræðum og menningarlegum uppákomum. Viðburður á Facebook: https://fb.me/e/10hl35kQ7

DAGSKRÁ:

  • Opnunarávörp - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, samstarfsráðherra
    Norðurlanda, og Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins.

  • Pallborðsumræður - Konur í stríði: hlutverk menningar og lista á stríðstímum. Fjórar úkraínskar og rússneskar konur sem starfa í menningargeiranum ræða um hlutverk menningar á stríðstímum, mátt listarinnar til að koma frásögnum til skila og fræða fólk, samhliða því að veita huggun og grið á tímum verstu hörmunga manna, eins og stríðsins í Úkraínu. Olga Jóhannesson stýrir umræðum.

  • Ávörp - Bryndís Haraldsdóttir, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, og Pär Ahlberger, sendiherra Svíþjóðar.

  • Upplestur - Guðni Elísson fjallar um og les upp úr bók sinni Ljósgildran sem er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.

  • Erindi - Helgi Þorsteinsson, sagnfræðingur og stjórnarmaður
    í Norræna félaginu: Stríð og friður á Norðurlöndum.

  • Lokaorð - Hrannar Björn Arnarsson, formaður Norræna félagsins.

  • Tónlistaratriði - Bragi Bergsson, þátttakandi í Söngvakeppninni 2023, flytur tvö lög.

  • Norræn móttaka - Vín og léttar veitingar í boði.

Konur í stríði – hlutverk menningar og lista á stríðstímum:

Af hverju að hlusta á tónlist, fara í leikhús, skrifa ljóð eða njóta myndlistar þegar stríðið geysar og fólk er að deyja? Ljóð munu ekki stöðva flugskeyti. Leikhús mun ekki binda enda á þjáningar.

En menning er ekki áhrifalaus.

Í gegnum listina getum við skapað tengingar milli fortíðar og framtíðar, hins óhlutbundna og hins áþreifanlega, lært að skilja og lært að efast. Við greinum betur á milli hins góða og slæma á tímum baráttu og hörmunga. Menning og listir hafa vald til þess að sýna stríð á sínum eigin forsendum, að miðla boðskapnum rakleiðis og handan við hefðbundin mannleg samskipti og áróður.

Við kynnumst fjórum konum sem starfa í lista- og menningargeiranum, en þær eru Valerie Ósk Elenudóttir, íslensk-úkraínsk leikkona, Natasha S, íslensk- rússneskt ljóðskáld sem hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í fyrra, Kateryna Mysechko, úkraínskur fiðluleikari í Synfóníuhljómsveit Íslands og Helena Steptytska, úkraínsk listakona og skipulagshönnuður.

Við munum ræða um hlutverk menningar á stríðstímum, mátt listarinnar til að koma frásögnum til skila og fræða fólk, samhliða því að veita huggun og grið á tímum verstu hörmunga manna, eins og stríðsins í Úkraínu.

Olga Jóhannesson stýrir umræðunum.

//

Nordens Dag 2023 – Gemensam nordisk kraft och kulturens styrka i krigstid

Nordens Hus, Föreningen Norden Island och Nordiska Ministerrådet bjuder in till Nordens Dag i Nordens Hus i Reykjavík 23 mars kl. 15.00–17.15.

Dagen uppmärksammar Helsingforsavtalet som undertecknades den 23 mars 1962 och utgör grunden för det nordiska samarbetet. Programmet, vars tema i år är fred och gemensam nordisk kraft i krigstid, består av paneldiskussioner, tal och kulturaktiviteter.

PROGRAM:

• Invigningstal – Guðmundur Ingi Guðbrandsson, nordisk samarbetsminister och Sabina Westerholm, direktör för Nordens Hus i Reykjavík.

• Fyra ukrainska och ryska kvinnor från kultursektorn diskuterar kulturens roll i krigstid, konstens kra! att förmedla berättelser, utbilda folk och samtidigt trösta och skänka ro i tider av de värsta mänskliga tragedierna, så som kriget i Ukraina. Olga Jóhannesson leder diskussionen.

• Tal – Bryndís Haraldsdóttir, ordförande för Islands delegation i Nordiska Rådet och Pär Ahlberger, Sveriges ambassadör i Reykjavík.

• Högläsning – Guðni Elísson berättar om sin bok Ljósagildran, som är
nominerad till Nordiska Rådets litteraturpris, och läser ett stycke ur den

• Föredrag – Helgi Þorsteinsson, historiker och styrelseledamot
Föreningen Norden Island: Krig och fred i Norden.

• Slutord – Hrannar Björn Arnarsson, ordförande Föreningen Norden Island

• Musikinslag

• Nordisk mottagning – vin och tilltugg

VI SER FRAM EMOT DITT BESÖK