Fundur fólksins 2021

Fundur fólksins verður haldinn 3.-4. september 2021 í Norræna húsinu.

Tilgangur fundarins er að skapa vandaðan vettvang þar sem boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálamanna og frjálsra félagasamtaka, þar sem lýðræði og opin skoðanaskipti eru leiðarstefið.

Markmið fundarins er að skapa meira traust og skilning á milli ólíkra aðila samfélagsins án þess að vera föst í venjubundnum umræðufarvegi stjórnmála og fjölmiðla.

Fundur fólksins er sjálfstæð hátíð og ekki tengd neinum hagsmunaöflum á Íslandi eða annnars staðar.

Lýðræðishátíðin Fundur fólksins var fyrst haldinn í Norræna húsinu í júní 2015 að fyrirmynd annarra Norðurlanda, sem hafa haldið sambærilega fundi; á Borgundarhólmi (Danmörk), í Arendal (Noregur) og í Almedalen (Svíþjóð). Gestir þessara funda í nágrannalöndunum telja að öllum jafnaði tugi þúsunda og þar er að finna afar umfangsmikla þátttöku frjálsra félagasamtaka, stofnana, stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks, fyrirtækja auk almennra borgara.
Nokkur félagasamtök komu strax í upphafi að undirbúningi fundarins, þ.á.m. Almannaheill. Ári síðar tók Almannaheill hátíðina að sér með fjárhagsstyrk frá félagsmálaráðuneytinu og Reykjavíkurborg ásamt stuðningi frá Norræna húsinu.

Árið 2017 var hátíðin flutt til Akureyrar með samningi Almannaheilla við Menningarfélag Akureyrar, sem hefur síðastliðin þrjú ár haldið Fund Fólksins undir nafninu LÝSA – Rokkhátíð samtalsins í Menningarhúsinu Hofi.

Stefnt er að því að Fundur fólksins verði haldinn í Reykjavík næstu ár, með stuðningi Reykjavíkurborgar, félagsmálaráðuneytisins og annarra samstarfsaðila.